zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Toggle Sidebar
zeno
Fotbolti.net
Fotbolti.net
Professional
Icelandic
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Website
Episodes
300
24 June 2026
Uppbótartíminn - Þrjú lið á leið í titilbaráttu?
Níunda umferð Bestu deildar kvenna kláraðist í gær með tveimur áhugaverðum leikjum.Farið var yfir alla leiki umferðarinnar í Uppbótartímanum í kvöld.Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Arnari Páli Garðarssyni og Snæbjörtu Pálsdóttur og þau fóru yfir leikina ásamt öllum helstu sögulínum.
24 June 2026
HM hringborðið - Stjörnurnar standa undir nafni
HM hringborðið á miðvikudegi. Kári Snorrason, Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fóru yfir úrslit og atburði síðustu daga á heimsmeistaramótinu.
23 June 2026
Harkið - Göngutúr í Garðinum
Harkið fór yfir stærstu atvikin í níundu umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmönnum umferðar í báðum deildum.-Uppgjör 3.deildar - 06:00-Uppgjör 2.deildar - 40:00-Spá - 01:24Harkið er í boði SerranoÞáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson
22 June 2026
Innkastið - Dalur martraðanna
Innkastið eftir 11. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Runólfur Trausti íþróttafréttamaður og markvarðaþjálfari.Víkingar sýndu mátt sinn og megin þegar þeir tóku Framara í kennslustund, KR vann markaleik gegn ÍA, Eyjamenn eru komnir á mjög gott ról, fimmtán ára markaskorari þegar Breiðablik vann KA, jafntefli í Krikanum og á Hlíðarenda.
20 June 2026
Útvarpsþátturinn - Keli í Dal draumanna og Freysi í Þrándheimi
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 20. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.Farið er yfir komandi umferð í Bestu deildinni og Þorkell Gunnar ræðir um Fram og stemninguna í Dal draumanna.Freyr Alexandersson nýr þjálfari Rosenborgar er á línunni beint frá Þrándheimi.Þá er rætt um heimsmeistaramótið í fótbolta.
19 June 2026
HM hringborðið - Tíu menn og stytta
Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, og Magnús Haukur Harðarson voru gestir í HM hringborðinu þennan föstudaginn. Stóru þjóðirnar mættu til leiks og gerði Messi frábæra þrennu gegn Alsír, sömu sögu má ekki segja um Ronaldo og félaga hans í Portúgal sem gerðu 1-1 jafntefli við Kongó.
18 June 2026
UTAN VALLAR: Yfirferð á ársreikningum - Fylkir í miklu brasi
- Hægt er að horfa á þáttinn í mynd á YoutubeSævar Þór Sveinsson, umsjónarmaður Utan vallar, fór yfir ársreikninga liða úr Bestu- og Lengjudeildinni ásamt Kára Snorrasyni.Farið var yfir helstu tölur, sýnd gröf og rýnt í stöðu liðanna út frá ársreikningunum.
18 June 2026
Harkið - Bann í Búdapest
Harkið fór yfir stærstu atvik í áttundu umferð 2. og 3. deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum.Guðbjörn Smári var vant við látinn hjá tannlækni því var kallað í Freysa.- Uppgjör 2.deildar: 8:00- Uppgjör 3.deildar: 51:00- Spá: 01:24Harkið er í boði Serrano.Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
16 June 2026
Innkastið - Eru ósigraðir Víkingar óstöðvandi?
10. umferð Bestu deildar karla gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir og Valur Gunnars eru í hljóðveri og fótboltalýsandinn Kristinn Kjærnested, fyrrum formaður KR, er gestur.Víkingur vann toppslaginn gegn KR, Stjarnan gerði markajafntefli gegn Breiðabliki í fyrsta leik Jóns Þórs og ÍA vann Val. FH vann sinn fyrsta sigur í Keflavík, ÍBV fór illa með Þór og Fram vann KA í markaleik.
16 June 2026
HM hringborðið - Snyrtilegir Japanir og bitlausir Spánverjar
Kári Snorrason, Elvar Geir Magnússon og Sölvi Haraldsson í HM hringborðinu á þriðjudegi. Það var af nægu að taka í öðrum þætti hringborðsins þetta árið. Farið var yfir alla leiki, helstu atburði og sögulínur.